Dienstag, 19. Januar 2010

Símon rollt immer weiter....

... und weiter und weiter und landet irgendwann mal an den unmöglichsten Orten, wo man ihn dann wieder befreien muss, bevor noch was Schlimmeres passiert! Unbeaufsichtigt kann man ihn jedenfalls nicht mehr irgendwo in einem Zimmer liegen lassen, soviel steht fest.


Dass Símon musikalisch ist haben wir ja auch schon mehrmals feststellen können. Dazu braucht er nichtmal ein Instrument, oft sind ihm seine Stimmbänder durchaus genug. Zum Beispiel singt er uns und seinem Güggeli beim Wickeln gerne was vor und strampelt dabei auch rum wie ein Weltmeister so dass die Fetzen nur so fliegen....

Montag, 18. Januar 2010

Símon sem tískumódel

Já, ég gleymdi alveg að sýna ykkur myndir af nýju samfellunni sem Símon fékk frá bróður mínum...... Hmmm, það þarf kannski smá forsögu til að útskýra þessa gjöf: Bróðir minn er guðfaðir Símons og milli jóla og nýárs fór hann með nokkrum vinum sínum á skiði í Zermatt (þar sem Matterhorn er, fjallið sem var fyrirmynd að Toblerone). Þar var náttúrulega ekki bara farið á skiði heldur einnig drukkið af krafti. Eftir átta daga áfengismisnotkun (eins og bróðir minn sagði sjálfur frá) ákvað hann að kaupa lítið "souvenir" handa guðsyni sínum og fann þessa ferlega flotta samfellu (á henni stendur: "My Dad Skis better than your Dad") sem hann keypti undireins. Því miður tók hann ekki eftir litnum á samfellunni fyrr en hann var kominn heim..... hún er nefnilega svo undurfallega BLEIK!!! Jæja, núna er bróðir minn í áfengisbindindi og Símon að kynnast sinni kvenlegu hlið......

Brot af hinu og þessu

Um helgina fórum við litla fjölskyldan til Steffi vinkonu minnar sem býr nálægt Biel (rúmlega klukkutíma akstur frá Baden, í vestur). Hún býr þar með Cedric og tveimur strákum þeirra, Leander og Julian, í hluta af gömlu bændabýli (efstu tvær hæðir hægra megin á myndinni hér til vinstri) sem þau gerðu sjálf upp. Þetta er alveg yndislegt hús síðan á 16. öld sem er búið að gera mikið fyrir. Kyndingin er ennþá mjög frumstæð: á hverri hæð er einn ofn sem þarf að henda timbri í með reglulegu millibili svo það kólni ekki allt í einu. En þar sem þau endurbættu einangrunina svo rosalega mikið þá helst hitinn mjög vel inni. Hjá þeim gistum við allavega eina nótt og höfðum skemmtilegt spilakvöld (eftir að öll börnin voru sofnuð) þar sem við kenndum þeim félagsvist (næsta föstudagskvöld er nefnilega spilakvöld í vinnunni hjá okkur, sem við missum náttúrulega af, svo við ákváðum bara að halda okkar eigið spilakvöld hér úti....). Næst á dagskrá er núna fyrir Hannibal að læra "Jass", sem er þjóðarspil okkar Svisslendinga!


Þar fékk Símon líka útrás fyrir tónlistarþörfina sína og brilleraði á hljómborðinu, hann tók meira að segja tvíleik með Leander, hlustið bara:


Áður en við fórum heim á leið skruppum við aðeins í kaffi til Beate vinkonu og Stefan sem búa þarna stutt frá, í Neuchâtel. Stelpan þeirra, hún Anna, var ekki allt of hrifin af því að deila öllum leikföngum sínum með Símoni og tók skemmtilegustu bílana nokkrum sinnum af honum. En hún var meira en til í að leika við hann og fékk hann til að hlæja alveg þvílíkt mikið. Við Hannibal vissum bara ekki að hann gæti hlegið svona rosalega! Því miður endaði hláturskastið í ælukasti hjá honum og hann þurfti að fá bol lánaðan hjá henni. Hún hefur nokkuð forskot á hann hvað varðar aldurinn (hún er 14 mánaða gömul), en hann er samt næstum því jafningi hennar í lengd og þyngd. Bolurinn var merktur sem stærð 80 en Símon rétt svo komst í hann..... Vonandi verður hann ekki algjört tröll!


Þegar við komum aftur heim tókum við eftir því að Símon er farinn að rúlla sér ansi hratt og út um allt gólf (kannski fékk hann einhverjar vísbendingar hjá öllum þessum krökkum sem við heimsóttum?!?). Stundum lendir hann undir sófanum, stundum hjá sjónvarpinu og stundum færir hann pottaplönturnar hennar mömmu til (hún á lítið pálmatré á hjólum sem er sérstaklega vinsælt hjá honum.....). Svo það var ákveðið um helgina að setja hann allavega af og til "í búrið" til að koma í veg fyrir að hann gerir allt of mikið af sér.


Matartímarnir eru ennþá í miklu uppáhaldi hjá Símoni. Hann klárar alltaf matinn sinn, alveg sama þó við séum að stækka skammtana frá degi til dags. Ég hlýt að vera snilldarkokkur fyrst hann borðar með svo góðri lyst, eða hvað?!? Hann er líka að verða meira og meira hávær þegar hann rekur á eftir okkur um að gefa honum hraðar að borða. Greinilega markmiðið hjá honum um að setja ný hraðamet á hverjum degi..... Þessa viku erum við komin út í kartöflu-gulrótar-kúrbitsmauk og á morgun bætist kalkúnn við. Mjög girnilegt! Og já, stundum er hann svo gráðugur að hann reynir að éta "Nuschelið" sitt...... Og já, tennurnar eru orðnar tvær og hann heldur greinilega áfram að taka fleiri tennur miðað við grátinn þessa daga!

Donnerstag, 14. Januar 2010

Der erste Zahn ist da!

Jawoll, seit Montag spürt man deutlich was Spitzes in Símons Mund. Gesehen haben wir zwar immer noch nichts, aber das liegt nur daran, dass Símon sich nicht ins Maul gucken lassen will. Nun hoffe ich bloss, dass es ihm nicht plötzlich in den Sinn kommt zuzubeissen beim Stillen! Er ist ja schon so frech genug wenn's um Essen oder Trinken geht..... Dafür hat er die letzten zwei Nächte total schön durchgeschlafen, ganze 11 Stunden lang! So ein Luxus!!! Übers Wochenende wollen wir eine Nacht woanders verbringen, hoffentlich bringt das seinen Rhytmus nicht gleich wieder völlig durcheinander......

Montag, 11. Januar 2010

Fyrsti reiðtúrinn!


Jæja loksins tókst það: Eftir sex hestalausa mánúði hefur Símon nú fengið að fara á bak í fyrsta skipti á ævinni sinni! Hesturinn var ekki íslenskur, en hann var samt passlega stór fyrir þennan litla mann og hann fékk góða aðstoð frá "Grosstante Theres", sem er líka eigandi hestsins. Á laugardagskvöldi vorum við svo hjá hinni systur pabba í mat og eins og sést á myndinni þá var Símon mjög áhugasamur um allt sem fram fór, sérstaklega vinið.... Hann ætlar greinilega að verða alvöru hestamaður!!!


Þrátt fyrir kuldann nýttum við sunnudaginn til að fara í góðan göngutúr í skóginum heima hjá mömmu. Vegna mikils snjós á öllum vegum var ákveðið að skilja barnavagninn eftir heima og bera Símon frekar í Baby Björn. Honum fannst þetta mjög spennandi og hann hélt sér vakandi heillengi þó hann væri eiginlega dauðþreyttur.... Snilldin hér er að það ríkir oftast logn svo það er mun auðveldara að klæða kuldann af sér en heima.

Samstag, 9. Januar 2010

Jólasveinninn fær enga hvíld....

Í gær fengum við góða vinkonu og stelpurnar hennar tvær í heimsókn til okkar. Símon Breki var fjlótur að daðra við yngri systurina (Carla) á meðan amma hans tók að sér að leika við eldri systurina (Hannah, sem var greinilega í sykurvímu eftir að hún fékk tvær marsipangulrætur! Hún talaði og talaði og vildi alls ekki samþykkja að jólasveinninn væri orðinn þreyttur og þyrfti að leggja sig og hvíla hreindýrið eftir allt jólastússið. Um leið og "amma Símons" var búin að leggja jólasveininn og hreindýrið þá kom Hannah aftur, hringdi dyrabjöllunni og lét jólasveininn fara á bak og leggja af stað í næstu ferð....).



Hér er svo smá myndbrot af Símoni að borða kvöldmatinn sinn. Í þetta skipti var hann nú mjög kurteis og ekki mjög hávær þegar hann vildi fá næstu skeið, en aldrei að vita hvað gerist næst....

Donnerstag, 7. Januar 2010

Der König und der Prinz

Gestern wurde bei uns erst ein König und danach noch ein Prinz gekrönt, und für beide war es das erste Mal! In Island kennt man die Tradition vom Dreikönigskuchen nicht, da gibt's dafür am 6. Januar einen Scheiterhaufen und Feuerwerk. Aber wir haben uns hier zu dritt (die Dritte im Bunde war Mami, nicht etwa Símon!) einen Kuchen geteilt und Hannibal war der Glückliche, der den König in einem seiner Kuchenstücke fand. Hannibal hatte allerdings bald mal genug von der Krone auf seinem Haupte und gab sie in einer äusserst feierlichen Zeremonie weiter an seinen Sohn, der sich eindeutig darüber freute....